Reykjavíkurborg – Fyrirhugað útboð 5. maí nk.Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 7. janúar 2021 útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2021. Í henni var gert ráð fyrir að lántakan yrði framkvæmd með stækkun á virkum skuldabréfaflokkum borgarsjóðs. Nú hefur Reykjavíkurborg samið við Arion banka um að sjá um skammtímafjármögnun og er gert ráð fyrir útboði á nýjum skammtíma skuldabréfaflokki borgarinnar á næsta útboðsdegi samkvæmt áætlun, þann 5. maí nk. Nánari upplýsingar um skuldabréfaflokkinn og fyrirkomulag útboðs verður tilkynnt í Kauphöll Íslands þegar nær dregur. Nánari upplýsingar gefur: Helga Benediktsdóttir Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is Sími: 898-8272
|