Icelandic
Birt: 2021-04-19 19:35:50 CEST
Vátryggingafélag Íslands hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

VÍS: Jákvæð afkomutilkynning

Samkvæmt drögum að árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs er vænt afkoma félagsins hagstæðari en afkomuspá gerði ráð fyrir. Ástæðan fyrir betri afkomu er hærri ávöxtun fjáreigna í fjórðungnum. Samkvæmt drögunum er hagnaður félagsins á fyrsta ársfjórðungi rúmlega 1,9 milljarðar króna fyrir skatta.  

Nú áætlar félagið að hagnaður ársins 2021 fyrir skatta verði um 3,8 milljarðar króna, en afkomuspá félagsins, sem birt var þann 29. janúar sl., gerði ráð fyrir að hagnaður ársins 2021 fyrir skatta yrði tæplega 2,6 milljarðar króna. 

Uppfærð spá vegna ársins 2021 verður birt samhliða birtingu árshlutauppgjörs fyrsta ársfjórðungs þann 29. apríl nk. 

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is