Icelandic
Birt: 2021-04-19 17:05:00 CEST
Arion banki hf.
Innherjaupplýsingar

Leiðrétting: Arion banki: Drög að uppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2021 liggja fyrir – afkoma fjórðungsins nemur um 6 milljörðum. Frétt birt: 2021-04-19 14:49:00

Í fyrri tilkynningu kom fram í fyrirsögn að drög að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2021 liggi fyrir þar sem hið rétta er fyrsti ársfjórðungur 2021.

Drög að uppgjöri Arion banka fyrir fyrsta ársfjórðung 2021 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim er afkoma fjórðungsins um 6 milljarðar króna og reiknuð arðsemi á ársgrundvelli ríflega 12%. Afkoman er umtalsvert umfram fyrirliggjandi spár greiningaraðila.

Rekstrartekjur fjórðungsins nema um 13 milljörðum króna, þar af eru tekjur af kjarnastarfsemi (vaxtatekjur, þóknanatekjur og tekjur af tryggingastarfsemi) ríflega 11 milljarðar króna og hækka um 4% frá fyrsta ársfjórðungi 2020. Vaxtatekjur hækka lítillega milli ára. Rekstrarkostnaður fjórðungsins nemur ríflega 6 milljörðum króna og lækkar um 2,5% frá sama fjórðungi síðasta árs.

Stærsta breytingin milli ára liggur í virðisbreyting útlána sem var jákvæð um 1,1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi 2021 en á sama tíma fyrir ári var virðisbreyting neikvæð um 2,9 milljarða króna og tengdist að mestu þeirri óvissu sem uppi var vegna COVID-19 faraldursins, sem þá var nýhafinn. Jákvæða virðisbreytingu nú má einkum skýra með innágreiðslum á áður niðurfærð lán, meiri vissu um stöðu stórra viðskiptavina í kjölfar COVID-19 og breytingu á samsetningu lánabókar, þar sem hlutfall vel tryggðra íbúðalána hefur aukist á kostnað fyrirtækjalána. Lánabók bankans stækkaði um 1,7% á fyrsta fjórðungi ársins.

Tekjuskattshlutfall fjórðungsins er tæplega 24% og afkoma af eignum til sölu er óveruleg.

Uppgjörið og kynningarefni fyrir fyrsta ársfjórðung 2021 er enn í vinnslu og kann því að taka breytingum fram að birtingardegi þann 5. maí nk.

Rétt er að taka fram að áfram ríkir nokkur óvissa í starfsumhverfi bankans og þá fyrst og fremst tengd þróun COVID-19 faraldursins og þeim áhrifum sem faraldurinn kann að hafa á íslenskt efnahagslíf.


Arion banki Drog a uppgjori fyrsta arsfjorungs 2021 liggja fyrir - afkoma fjorungsins nemur um 6 milljorum. Frett birt 2021-04-19 144900.pdf