English Icelandic
Birt: 2021-04-15 17:45:23 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 21 talsins og námu samtals 5.960 m. kr. að nafnverði.

Þrjú tilboð að fjárhæð 740 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,47%-2,51%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Átján tilboð að fjárhæð 5.220 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,11%-3,18%. Tilboðum að fjárhæð 4.220 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,15% Heildarstærð flokksins verður 19.800 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. apríl 2021. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.