Icelandic
Birt: 2021-03-25 19:35:35 CET
Reitir fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Niðurstaða skuldabréfaútboðs 25. mars 2021

Lokuðu útboði Reita fasteignafélags hf. á skuldabréfum þann 25. mars 2021 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í nýjum verðtryggðum flokki, REITIR150527, ásamt bréfum í óverðtryggða flokknum REITIR150523. Nánari upplýsingar um REITIR150527 flokkinn má sjá hér. Alls bárust tilboð í flokkana tvo að nafnvirði 5.770 m.kr.

Í flokknum REITIR150527 var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 1.210 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,38%. Í flokknum REITIR150523 var ákveðið að taka tilboðum að nafnvirði 600 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,68%. 

Fossar markaðir höfðu umsjón með sölu skuldabréfanna. 

Gjalddagi áskrifta og afhending bréfa er fyrirhuguð þriðjudaginn 30. mars næstkomandi og óskað verður eftir því að hin nýju skuldabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið. 

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra skuldabréfaflokka verða birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins. 

Nánari upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími 669 4416, og Matei Manolescu, Markaðsviðskipti, Fossar markaðir, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com, sími 522 4008.