Icelandic
Birt: 2021-03-25 13:20:55 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Samningur um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf Reykjavíkurborgar, RVK 53 1, RVK 32 1, RVKN35 1 og RVKG 48 1

Samningur um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf Reykjavíkurborgar, RVK 53 1, RVK 32 1, RVKN35 1 og RVKG 48 1

Þann 25. mars 2021 samþykkti borgarráð að endurnýja samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Kviku banka hf. og Landsbankann hf. um viðskiptavakt með skuldabréfaflokkana RVK 53 1, RVK 32 1, RVKN 35 1. Einnig er samið um viðskiptavakt um skuldabréfaflokkinn RVKG 48 1, sem hefst eftir fyrsta útboð í flokkinum á samningstímanum.

Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningurinn tekur til, auka seljanleika þeirra á eftirmarkaði og stuðla að eðlilegri verðmyndun.
Viðskiptavakt Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Kviku banka hf., Landsbankans hf., gildir frá og með 1. apríl 2021 til 31. mars 2022.

Helstu atriði samningsins eru:

Viðskiptavakar skuldbinda sig til að setja fram dagleg kaup- og sölutilboð í skuldabréfin í Kauphöllinni fyrir opnun markaðar, sjá lágmarks tilboð í meðfylgjandi töflu. Tilboð skulu endurnýjuð eigi síðar en innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið.

Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra tilboða og má mest vera 1,0% í flokkum RVKN 35 1 og RVK 32. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða í RVKG 48 1 og RVK 53 1 má mest vera 1,5%.

SkuldabréfaflokkurTilboðsskylda að nafnverðiHámarksverðbil kaup- og sölutilboða
RVKN 35 120 m.kr.1,0%
RVK 32 120 m.kr.1,0%
RVKG 48 1*10 m.kr.1,5%
RVK 53 1  15 m.kr.1,5%

*Viðskiptavakt með skuldabréfaflokkinn RVKG 48 1 hefst eftir fyrsta útboð í flokknum sem haldið verður á samningstímanum.

Eigi viðskiptavaki, á einum viðskiptadegi, viðskipti fyrir samanlagt 180 m.kr. að nafnvirði í þeim flokkum sem viðskiptavakt er með (viðskipti tilgreind “AUTO”) er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða það sem eftir lifir viðskiptadags. Forsenda fyrir því að viðskiptavaki megi víkja frá ofangreindum hámarksmun er að 90 m.kr. af samanlögðum viðskiptum hans eigi sér stað með þeim hætti að gengið  hafi verið að framlögðum tilboðum hans.

Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til.

Nánari upplýsingar gefur:
Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is     
Sími: 898-8272

Viðhengi



Viskiptavakasamningur 2021 RVK synishorn.pdf