Icelandic
Birt: 2021-03-22 11:48:25 CET
TM hf.
Boðun hluthafafundar

Hluthafafundur TM 30. mars 2021 – Endanlegar tillögur og ályktanir

Samkvæmt samþykktum TM hf. skal a.m.k. þremur dögum fyrir hluthafafund birta upplýsingar um þær tillögur og ályktanir sem lagðar verða fyrir fundinn og eftir atvikum endurskoðaða dagskrá fundarins.  Engar kröfur um tiltekin mál eða tillögur bárust frá hluthöfum innan tilskilins frests þar um sem var 20. mars sl.

Eru endanlegar tillögur og ályktanir vegna hluthafafundar 30. mars 2021 því óbreyttar frá fyrri tilkynningu félagsins 8. mars sl.

Allar upplýsingar um hluthafafundinn má nálgast á https://www.tm.is/fjarfestar/hluthafafundur