Icelandic
Birt: 2021-03-19 13:03:35 CET
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Endanleg dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2021. Upplýsingar vegna mætingar.

Meðfylgjandi eru endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund félagsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 25. mars 2021 kl. 16:00 í salnum Norðurljósum í Hörpu, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar er óbreytt frá tilkynningu félagsins 3. mars 2021 þar sem engar kröfur eða ályktanir bárust innan tilskilins frests frá hluthöfum um tiltekin mál. Önnur fundargögn en fylgja með má finna á heimasíðu félagsins á slóðinni: http://eik.is/hluthafar.

Vegna samkomutakmarkana eru þeir hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn beðnir um að láta vita af því við fyrsta tækifæri, með tölvupósti á stjornun@eik.is, svo áætla megi fjölda fundargesta.

Viðhengi



Dagskra aalfundar 2021.pdf
Tillogur stjornar fyrir aalfund 2021.pdf