Icelandic
Birt: 2021-03-18 10:21:17 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Correction: Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða útboða í skuldabréfaflokkum LSS150434 og LSS040440 GB

Leiðrétting: upphæð tekinna tilboða er leiðrétt hér að neðan í LSS150434 (er 1.406 m.kr. í stað 1.486 m.kr. í fyrri tilkynningu)

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 þann 17. mars 2021. Uppgjör viðskipta fer fram 19. mars 2021. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 4.660.000.000 á bilinu 1,08% - 1,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.406.000.000. Ákveðið var að taka 40% af tilboðum á ávöxtunarkröfunni 1,12% en öllum tilboðum á lægri ávöxtunarkröfu var tekið að fullu. Útistandandi fyrir voru ISK 89.016.852.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 90.502.852.565.

Lánasjóðurinn hélt einnig útboð í dag í grænum skuldabréfaflokki LSS040440 GB í samvinnu við Landsbankann. Alls bárust tilboð í LSS040440 GB að nafnvirði ISK 2.445.000.000 á bilinu 1,08% - 1,76%. Ákveðið var að afþakka öll tilboðin. Heildarstærð flokksins er því óbreytt ISK 1.100.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is