Icelandic
Birt: 2021-03-17 18:37:34 CET
Brim hf.
Boðun hluthafafundar

Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Brims hf. 25. mars 2021


Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.

Gætt verður að gildandi fyrirvörum stjórnvalda um fjöldatakmarkanir, nálægðarmörk og sóttvarnir en jafnframt verður boðið uppá á fullgilda rafræna þátttöku á fundinum í gegnum Lumi AGM án þess að hluthafar séu viðstaddir á fundarstað. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM.

Ekki eru breytingar á áður birtri dagskrá og tillögum.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.smartagm.com og eigi síðar en kl. 17.00 þann 24. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.

Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 17:00.

Dagskrá og tillögur stjórnar ásamt nánari upplýsingum má finna í meðfylgjandi viðhengi.

Viðhengi



Brim_adalfundur_2021_endanleg dagskra og tillogur.pdf