Félagsbústaðir: Niðurstaða skuldabréfaútboðsLokuðu útboði á félagslegum skuldabréfum Félagsbústaða lauk í gær, 10. mars 2021. Gefin voru út skuldabréf í flokknum FB100366 SB en skuldabréfin eru verðtryggð jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 10. mars 2066. Í heildina bárust tilboð að fjárhæð 3.760 m.kr. að nafnvirði á bilinu 1,60% - 2,00%. Tilboðum að fjárhæð 1.950 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 1,69%. Heildarstærð flokksins verður 13.600 m.kr. að nafnvirði eftir stækkunina. Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf. Nánari upplýsingar: Sigrún Árnadóttir Framkvæmdastjóri Félagsbústaða Sími: 520 1500 sigrun@felagsbustadir.is Daði Kristjánsson Fossar markaðir hf. Sími: 840 4145 dadi.kristjansson@fossarmarkets.com Matei Manolescu Fossar markaðir hf. Netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com Sími: 832 4008
|