Icelandic
Birt: 2021-03-10 15:35:25 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Ársreikningur

Lánasjóður sveitarfélaga - Ársreikningur 2020

Vöxtur útlána 23% á árinu 2020

Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga nam 783,4 milljónum króna á árinu 2020 samanborið við 794,8 milljónir króna á árinu 2019.

Heildareignir sjóðsins í lok ársins voru 143,6 milljarðar króna en voru 117,0 milljarðar í árslok 2019 sem er aukning um 23%. Heildarútlán sjóðsins námu 135,7 milljörðum króna í lok ársins samanborið við 110,6 milljarða í árslok 2019.

Markaðsverðmæti verðbréfaútgáfu nam 31,9 milljörðum króna samanborið við 15,2 milljarða króna á árinu 2019.

Eigið fé nam 19,1 milljörðum króna en var 18,3 milljarðar í árslok 2019. Vegið eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 454% sem nú er reiknað með fullri mildun. Í árslok 2019 var hlutfallið 70% en hefði verið 392% samkvæmt núgildandi aðferð. Lánasjóðurinn tilkynnti til kauphallar Nasdaq þann 16. apríl 2020 að hann hefði ákveðið að nýta heimild til mildunar við eiginfjárútreikninga lána með veð í tekjum sveitarfélaga.

Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2021 verði ekki greiddur út arður vegna afkomu 2020 til hluthafa til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár.

Rekstur ársins202020192018
    
Hreinar vaxtatekjur....................................8039821.013
Aðrar rekstrartekjur (gjöld).........................2002741
Almennur rekstrarkostnaður......................220214196
Afkoma fyrir óreglulega liði...................783795857
Óreglulegir liðir.........................................000
Hagnaður ársins.....................................783795857
    
Efnahagur 31. desember   
    
Handbært fé.............................................4.3494.9566.180
Ríkisbréf og ríkisvíxlar...............................3.0318170
Markaðsverðbréf.......................................4484110
Útlán og kröfur.........................................135.722110.65399.051
Aðrar eignir..............................................44202177
Eignir samtals........................................143.593117.040105.408
    
Verðbréfaútgáfa........................................122.52995.27584.536
Aðrar lántökur..........................................1.9053.3952.878
Aðrar skuldir og skuldbindingar..................979182
Skuldir samtals......................................124.53298.76187.496
    
Eigið fé..................................................19.06218.27817.912
    
CAD- hlutfall (Basel II)...............................454%*70%77%
*með mildun   

Framtíðarhorfur
Lánasjóður sveitarfélaga sér fram á áframhaldandi kröftuga eftirspurn eftir útlánum, bæði vegna COVID-19 faraldursins og ýmissa framkvæmda á vegum sveitarfélaga. Lánskjör hafa aldrei verið hagstæðari í sögu Lánasjóðsins enda er hlutverk hans að útvega lánsfjármagn á sem hagstæðustu kjörum til sveitarfélaga landsins. Lánasjóðurinn mun starfa í grundvallaratriðum svipað og undanfarin ár þar sem unnið hefur verið að eflingu á starfsemi hans og aukinni þjónustu við sveitarfélögin með því að nýta gott lánstraust sjóðsins til að uppfylla meginhlutverk hans.

Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949.

Viðhengi



Arsreikningur LS -2020 12 31.pdf
LS - Afkomutilkynning vegna arsuppgjors 2020.pdf