English Icelandic
Birt: 2021-03-09 16:41:10 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 23 talsins og námu samtals 5.220 m. kr. að nafnverði.

Tólf tilboð að fjárhæð 2.760 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,43%-2,50%. Tilboðum að fjárhæð 1.240 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,46%. Heildarstærð flokksins verður 48.040 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Ellefu tilboð að fjárhæð 2.460 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,20%-3,27%. Tilboðum að fjárhæð 1.860 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,24% Heildarstærð flokksins verður 15.580 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 16. mars 2021. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.