Lykill fjármögnun hf. gefur út nýjan 6 mánaða víxlaflokkLykill fjármögnun hf. hefur lokið sölu á nýjum 6 mánaða víxlaflokki sem ber auðkennið LYKILL210915. Alls bárust tilboð að nafnvirði 1.880 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.533 m.kr. á 1,70% flötum vöxtum. Útgáfudagur og gjalddagi áskrifta er 15. mars 2021. Stefnt er að töku til viðskipta á Nasdaq Iceland þann sama dag. Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útgáfu og sölu víxlanna. Nánari upplýsingar veitir: Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 444 6910
|