Icelandic
Birt: 2021-03-04 19:35:58 CET
Reginn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reginn hf.: Niðurstaða skuldabréfaútboðs


Reginn hf. (Nasdaq: REGINN) hefur lokið útboði á skuldabréfum í flokkunum REGINN23 GB og REGINN280130. Alls bárust tilboð að fjárhæð 9.670 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í REGINN23 GB voru samtals 2.220 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,88% og verður heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunar því að nafnverði 2.900 m.kr. Flokkurinn er óverðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Heildartilboð í REGINN280130 voru samtals 7.450 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að fjárhæð 1.600 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,83% og verður heildarstærð flokksins í kjölfar stækkunar því að nafnverði 8.020 m.kr. Flokkurinn er verðtryggður og tryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins.

Uppgjör viðskiptanna er fyrirhugað þann 11. mars næstkomandi. Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna ásamt töku þeirra til viðskipta á Nasdaq Iceland.


Nánari upplýsingar:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262