Icelandic
Birt: 2021-03-04 10:19:09 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 6.556 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 4.751 m.kr. að nafnvirði á bilinu 1,20% - 1,35%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 2.451 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,24%. Útistandandi fyrir útboð voru 7.410 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 9.861 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 1.805 m.kr. að nafnviði á bilinu 4,18% - 4,30%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.115 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,22%. Útistandandi fyrir útboð voru 14.070 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 15.185 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 9. mars 2021.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veita:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu Reykjavíkurborgar
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272