English
Published: 2021-02-24 17:55:27 CET
Festi hf.
Annual Financial Report

Festi hf.: Ársuppgjör 2020

Hagnaður 526 milljónir króna á 4. ársfjórðungi 2020

Helstu niðurstöður

  • Framlegð af vöru- og þjónustusölu í 4F 2020 var 5.288 m.kr. samanborið við 5.273 m.kr. í 4F 2019, sem samsvarar 0,3% hækkun milli ára.
  • EBITDA nam 1.746 m.kr. á 4F 2020 samanborið við 1.766 m.kr. 4F 2019, sem jafngildir 1,1% lækkun.
  • Áhrifa COVID-19 samkomutakmarkana sem komu til á 4F 2020 höfðu umtalsverð áhrif á reksturinn.
  • Framlegð af vörusölu var 22,8% á 4F 2020 en framlegðin var 24,8% á 4F 2019
  • Framlegð af vörusölu á árinu var 24% samanborið við 23,8% árið 2019
  • Kostnaður vegna COVID19 var 153 m.kr. á 4F 2020 og 394 m.kr. á árinu 2020.
  • Eigið fé í lok árs 2020 var 29.784 m.kr. og eiginfjárhlutfall 35,7% samanborið við 35,3% í lok árs 2019.
  • Nettó vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindingar var 29.986 m.kr. í lok 2020 samanborið við 28.011 m.kr. í lok 2019.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi:

„Rekstur Festi samstæðunnar á árinu 2020 gekk vel þrátt fyrir mjög krefjandi aðstæður þar sem samkomubönn og sóttvarnarráðstafanir höfðu mikil áhrif á öll dótturfélögin. N1 fann mikið fyrir minni umferð og algjöru hruni í ferðaþjónustunni en þá kom sér vel að þjónustusvæði félagsins er sterkt um allt land og í öllum atvinnugreinum. Kappkostað var að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum og enn eitt árið jukust umsvif bílaþjónustu félagsins. ELKO átti sitt besta ár frá upphafi þrátt fyrir að næststærsta verslun félagsins í Leifsstöð væri nánast lokuð í 10 mánuði árið 2020. Þessa velgengni má meðal annars þakka sterkum innviðum vefverslunar ELKO. Festi er einnig stór hluthafi í Dropp sem er í samstarfi við ELKO um afhendingu á vörum á sautján N1 þjónustustöðvum um landið og hefur það hjálpað okkur að tryggja betri þjónustu fyrir viðskiptavini í COVID19 faraldrinum. Umsvif Krónunnar jukust á árinu og var velta félagsins sú mesta frá upphafi. Þar kom einnig Snjallverslun Krónunnar til sögunnar sem er snjallforrit sem viðskiptavinir geta nýtt sér vilji þeir gera innkaupin á netinu og fá sent heim. Krónan opnaði þrjár nýjar verslanir á árinu, ELKO og N1 opnuðu nýjar verslanir á Akureyri sem hafa allar hlotið góðar viðtökur.

Á heildina litið gekk reksturinn vel við þessar aðstæður og á starfsfólk okkar heiður skilinn fyrir framúrskarandi vinnu við að þjónusta viðskiptavini okkar. Það er gæfa Festi að eiga sterk vörumerki sem eru öll leiðtogar á sínum mörkuðum. Við sjáum ennþá mikil tækifæri í samstæðunni til framtíðar með nýtingu á tækni og lausnum sem auðvelda líf okkar viðskiptavina. 

Horfur í rekstri Festi samstæðunnar eru góðar og félagið er vel í stakk búið til að takast á við verkefnin framundan. Umhverfismál eru stór hluti af okkar starfsemi og munum við áfram leggja mikla áherslu á gæði og öryggismál til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina,“  segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.

Nánari upplýsingar er að finna í viðhengjum.

Attachments



Festi hf - Afkomutilkynning 4F 2020.pdf
Festi hf - Arsreikningur 2020 - undirrita.pdf