Icelandic
Birt: 2021-02-17 17:48:28 CET
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í LSS150434 og LSS151155 þann 17. febrúar 2021. Uppgjör viðskipta fer fram 19. febrúar 2021.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 10.385.000.000 á bilinu 1,34% - 1,50%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.540.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,35%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 84.882.852.565 en er nú ISK 87.422.852.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 340.000.000 á bilinu 1,65% - 1,70%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 340.000.000 á ávöxtunarkröfunni 1,70%. Heildarstærð flokksins að nafnvirði fyrir útboðið var ISK 22.384.000.000 en er nú ISK 22.724.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þ. Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is