English Icelandic
Birt: 2021-02-16 16:53:55 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru 24 talsins og námu samtals 6.760 m. kr. að nafnverði.

Níu tilboð að fjárhæð 3.640 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,29%-2,38%. Tilboðum að fjárhæð 3.340 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,36% Heildarstærð flokksins verður 46.800 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Fimmtán tilboð að fjárhæð 3.120 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,10%-3,18%. Tilboðum að fjárhæð 2.520 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,15% Heildarstærð flokksins verður 13.720 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. febrúar 2021. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.