Icelandic
Birt: 2021-01-28 10:33:32 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 3.950 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 2.470 m.kr. að nafnviði á bilinu 1,23% - 1,39%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.630 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,31%. Útistandandi fyrir útboð voru 5.780 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 7.410 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 1.480 m.kr. að nafnviði á bilinu 4,08% - 4,16%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 690 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,11%. Útistandandi fyrir útboð voru 13.380 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 14.070 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 2. febrúar 2021.

Fossar markaðir höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veita:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu Reykjavíkurborgar
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272

Daði Kristjánsson
Fossar markaðir hf.
Netfang: dadi.kristjansson@fossarmarkets.com
Sími: 840-4145

Matei Manolescu
Fossar markaðir hf.
Netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com
Sími: 832-4008