English Icelandic
Birt: 2021-01-25 14:31:45 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Landsbankinn gefur út skuldabréf að fjárhæð 900m sænskra króna

Landsbankinn lauk í dag sölu á skuldabréfum með breytilegum vöxtum til átján mánaða að fjárhæð 900 milljónir sænskra króna. Gert er ráð fyrir að skuldabréfin fái lánshæfiseinkunnina BBB frá S&P Global Ratings. Skuldabréfin voru seld á kjörum sem jafngilda 75 punkta álagi á þriggja mánaða millibankavexti í sænskum krónum.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans og er stefnt að töku skuldabréfanna til viðskipta á Euronext Dublin þann 2. febrúar 2021.

Umsjónaraðilar sölunnar voru Danske Bank, Nordea og SEB.