English Icelandic
Birt: 2021-01-18 17:25:54 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Tilboð í útboðinu voru sextán talsins og námu samtals 3.600 m. kr. að nafnverði.

Ellefu tilboð að fjárhæð 2.540 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 23 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,63%-2,70%. Tilboðum að fjárhæð 1.700 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 2,67% Heildarstærð flokksins verður 43.460 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tvö tilboð að fjárhæð 80 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,16%-3,19%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Þrjú tilboð að fjárhæð 980 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 26 á ávöxtunarkröfu á bilinu 0,59%-0,68%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 0,68%. Heildarstærð flokksins verður 12.080 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 25. janúar 2021. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.